Fyrri dagur CrossFit leika Íslands fóru fram í dag í CrossFit Sport. Þessi dagur var frábær upplifun og má með sanni segja að á leikunum eru stórkostlegir íþróttamenn að taka þátt. Fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með leikunum er www.crossfitsport.is með lýsingar á æfingunum og sætaskipan hverju sinni.
Burpee áskorun dagur 87!
Upphitun: 3 hringir
10 hnébeygjur
10 upphífingar
10 kviðæfingar
10 dýfur
Æfing dagsins er ein af wodunum sem var á leikunum í dag.
Á tíma:
500 metra róður
50 tvöfalt sipp
450 metra hlaup
Skráið tímann á spjallið!
Kv Brynjar og Elma
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Takk kærlega fyrir hjálpina á leikunum Brynjar - alltaf gaman að kynnast góðu fólki.
ReplyDeleteSvo hvet ég alla Akureyrska CrossFittara að vera virkir inni á facebook, þ.a. það sé hægt að spjalla saman, en ekki bara skilja eftir komment inni á svona huggulegri heimasíðu :)
CrossFit for life - Jónína
Vill líka nota tækifærið og þakka fyrir mig á leikunum. Annars var tímin minn á leikunum 5:08 rx. Þar sem ég var ekki búin að taka grunnnámskeiðið kom í ljós að ég er ekki nógu góður í DU en það verður breyting á því :-) Unnar
ReplyDelete