CrossFit Akureyri byrjar í nóvember 2009!

Í nóvember mun Bjarg Líkamssrækt á Akureyri byrja með CrossFit! Þetta er mikið gleðiefni fyrir Akureyringa þar sem CrossFit er í hugum margra framtíðin í þjálfun almennings og íþróttamanna, bæði einstaklinga og hópa.

Til að byrja með mun CrossFit Akureyri vera með þrjú grunnámskeið þar sem kennarar okkar þau Brynjar og Elma vottaðir CrossFit þjálfarar munu kenna þér rétta líkamsbeitingu við þær fjölmörgu æfingar sem notaðar eru í CrossFit, æfingar sem skila þér betri alhliða árangri en þú hefur áður kynnst.

Að grunnámskeiði loknu munt þú vera gjaldgengur í hinar daglegu CrossFit æfingar sem boðnar verða á bjargi, svokallaðar WOD “workout of the day” þar sem þú munt takast á við ný verkefni á degi hverjum.

Uppselt er á öll grunnámskeið í Nóvember.

Sjáumst hress!

Kv Brynjar og Elma

No comments:

Post a Comment